Meira vald í daglegu lífi
Fagleg skipulagsþjónusta og sérsniðin ráðgjöf fyrir þig.

Hvernig getum við hjálpað?
Þjónusta sem mætir þér þar sem þú ert
Hvort sem þú vilt setja verkefnið í öruggar hendur eða fá skýra ráðgjöf til að halda sjálf áfram.
Svona vinnum við
1. Velja
Þú velur rýmið og segir okkur hvað þú vilt gera auðveldara.
2. Aðlaga
Við skoðum rýmið, þarfir heimilisins og hvort nýjar hirslur gætu hjálpað.
3. Laga
Við flokkum, fækkum og finnum hlutunum rökréttan stað.
4. Daglegar venjur
Við förum yfir skipulagið og einfaldar venjur sem hjálpa þér að viðhalda því.
Umsögn viðskiptavinar
„Skipulagið kveikti neistann að því að halda áfram.“
Skipulagið hjálpaði mér að losa um stíflu sem ég hafði myndað vegna kvíða yfir tiltektarverkefni sem hafði setið á hakanum. Eins og örugglega flestir þekkja getur svona verkefni vaxið í augum og valdið meiri og meiri kvíða.
Lesa alla umsögnina
„Skipulagið hjálpaði mér að losa um stíflu sem ég hafði myndað vegna kvíða yfir tiltektarverkefni sem hafði setið á hakanum. Eins og örugglega flestir þekkja getur svona verkefni vaxið í augum og valdið meiri og meiri kvíða.
Skipulagið kom og leysti verkefnið með glæsibrag, og það er magnað hvað það hafði mikil áhrif í kjölfarið. Stíflan og kvíðinn voru farin og allt í einu virtust önnur verkefni miklu einfaldari. Nú klára ég þau frekar strax og á auðveldara með að viðhalda því skipulagi sem komið var á.
Skipulagið kveikti neistann að því að halda áfram. Nú er ég sífellt að spá í hvernig ég geti gert fleiri rými betri, set fleiri verkefni af stað og finn jafnvel gleði í því að gera þau.
Takk fyrir að losa um uppsafnaðan kvíða vegna verkefnis sem mér fannst óyfirstíganlegt, en þið leystuð með bros á vör. Vegna ykkar fékk ég aftur löngun og jafnvel tilhlökkun til að bæta fleiri rými á heimilinu, starfsstöðina og margt fleira.“
Tökum fyrsta skrefið



