← Allar þjónustuleiðir

Eldhús

Hjarta heimilisins

Skipulag eldhússins hefur mikil áhrif á hvernig dagarnir ganga. Þegar hlutirnir eiga skýran og rökréttan stað verður minna áreiti og minna stress, sérstaklega á annasömum morgnum. Þá verður auðveldara að útbúa mat, ganga frá, halda yfirsýn og viðhalda skipulaginu. Skýrt skipulag auðveldar líka öllum á heimilinu að taka þátt og ganga frá eftir sig. Við leggjum því til að eldhúsið sé fyrsta rýmið sem við komum í lag.

Bóka þjónustu
Bjart og vel skipulagt eldhús með stórri eyju, ávaxtakörfu og bleikum stólum

Svona virkar þetta

Frá vali að venjum

1. Velja

Þú velur eldhúsið og segir okkur hvað gengur ekki nógu vel í dag, gjarnan með myndum af rýminu og innan úr skápum og skúffum.

2. Aðlaga

Við skoðum rýmið, matargerð, innkaup og venjur heimilisins. Við metum hvað nýtist áfram og hvort þörf sé á hentugri hirslum.

3. Laga

Við flokkum matvöru, leirtau og áhöld, förum yfir útrunnar vörur, þurrkum af og finnum hverjum hlut rökréttan stað. Þú þarft ekki að vera heima.

4. Daglegar venjur

Við förum með þér yfir nýja skipulagið og einfaldar venjur sem auðvelda öllum á heimilinu að ganga frá og viðhalda því.

Viltu bóka eldhúsið?

Bóka þjónustu