← Allar þjónustuleiðir
Barnaherbergi
Pláss fyrir leik og ró
Þegar föt, leikföng og bækur eiga skýran stað verður rýmið rólegra og auðveldara að halda við. Við aðlögum skipulagið að aldri barnsins svo það geti sjálft fundið hlutina sína og tekið þátt í fráganginum.
Bóka þjónustu
Svona virkar þetta
Frá vali að venjum
1. Velja
Þú velur barnaherbergið og segir okkur frá barninu, venjum þess og því sem gengur ekki nógu vel í dag.
2. Aðlaga
Við skoðum hvað barnið notar, hvað þarf að vera innan seilingar og hvort nýta megi núverandi hirslur eða bæta við einföldum lausnum.
3. Laga
Við flokkum föt, leikföng og bækur, þurrkum af og finnum hverjum flokki skýran og rökréttan stað.
4. Daglegar venjur
Við förum yfir skipulagið með ykkur og mótum einfaldan frágang sem barnið getur tekið þátt í og auðvelt er að viðhalda.
