← Allar þjónustuleiðir
Fataskápar
Yfirsýn frá degi til dags
Þegar fatnaður, skór og fylgihlutir eru flokkaðir og sýnilegir verður auðveldara að velja og ganga frá. Við nýtum plássið betur og mótum skýrt kerfi sem hentar þínum venjum.
Bóka þjónustu
Svona virkar þetta
Frá vali að venjum
1. Velja
Þú velur fataskápinn og segir okkur hvað þú vilt sjá, finna eða ganga betur frá, gjarnan með myndum af skápnum.
2. Aðlaga
Við skoðum fatavenjur, árstíðir og hvað hentar best að hengja, brjóta saman eða geyma í hirslum.
3. Laga
Við flokkum föt, skó og fylgihluti, þurrkum af og nýtum plássið þannig að það sem þú notar sé sýnilegt og aðgengilegt.
4. Daglegar venjur
Við förum yfir skipulagið og einfaldan frágang sem hjálpar þér að halda yfirsýn og viðhalda kerfinu.
