← Allar ráðgjafarleiðir

Ráðgjöf

90 mín ráðgjöf og sérsniðnar leiðbeiningar

Þú velur rými eða sýnir okkur heimilið. Á allt að 90 mínútna fundi heima hjá þér eða á fjarfundi förum við yfir venjur, hirslur og það sem veldur mestum núningi. Við finnum hvar best er að byrja og þú færð sérsniðnar skriflegar leiðbeiningar um flokkun, staðsetningu og einfaldar daglegar venjur sem hjálpa þér að viðhalda skipulaginu.

Bóka ráðgjöf
Körfum og hlutum komið fyrir í hillu

Svona virkar þetta

Frá vali að daglegum venjum

1. Velja

Þú velur rými eða sýnir okkur heimilið. Við greinum hvað þarf að gera og hvar helsti flöskuhálsinn er.

2. Aðlaga

Við hittumst, skoðum aðstæður og setjum saman skriflegar leiðbeiningar sem henta þér og þínu heimili.

3. Laga

Þú vinnur eftir ráðleggingunum og kemur skipulaginu í framkvæmd á þínum hraða.

4. Daglegar venjur

Í leiðbeiningunum eru einfaldar daglegar venjur sem hjálpa þér að viðhalda skipulaginu.

Viltu smá hjálp til að komast áfram?

Bóka ráðgjöf