Ráðgjöf
Fundur og skriflegt plan
Við hittumst heima hjá þér eða á fjarfundi, skoðum rýmið og það sem þú vilt breyta. Eftir fundinn færð þú skriflegt plan með skýrum skrefum til að vinna eftir á þínum hraða.
Bóka ráðgjöf
Innifalið
Fundur og plan fyrir þig
Ráðgjöfin getur farið fram heima hjá þér eða á fjarfundi. Við förum yfir rýmið, venjur heimilisins og það sem veldur mestum núningi í daglegu lífi.
Þú færð faglegt mat, tillögur að flokkun og staðsetningu, ráðleggingar um hirslur ef þeirra er þörf og skriflegt plan sem sýnir hvað er best að gera fyrst.
Innifalið er allt að 90 mínútna fundur og skrifleg áætlun um næstu skref.
Svona virkar þetta
Frá vali að skýru plani
Þú velur rými eða verkefni og segir okkur hvað þú vilt að verði auðveldara.
Við hittumst heima hjá þér eða á fjarfundi og förum yfir aðstæður, þarfir og venjur.
Við mótum lausnir sem henta heimilinu og metum hvort breytt uppröðun eða hirslur geti hjálpað.
Þú færð forgangsraðað og framkvæmanlegt plan sem þú vinnur eftir á þínum hraða.
