
Sjónrænir tékklistar
Prentvænir tékklistar og rútínuspjöld sem gera dagleg verkefni skýrari og auðveldari í framkvæmd.
Sjónrænt skipulag
Sjónrænar lausnir gera rútínur og verkefni fyrirsjáanlegri, fækka óþarfa áminningum og auðvelda fólki að sjá hvað kemur næst.

Prentvænir tékklistar og rútínuspjöld sem gera dagleg verkefni skýrari og auðveldari í framkvæmd.

Einfaldar myndrænar sögur sem undirbúa börn fyrir daglegar aðstæður, breytingar og samskipti.

Myndrænir merkimiðar sem sýna hvar hlutirnir eiga heima og auðvelda öllum að viðhalda skipulaginu.

Hlýlegt og hagnýtt verkfæri sem hjálpar börnum að beina athyglinni að því sem gekk vel og góðu augnablikunum í hversdeginum.
Faglegt samstarf
Gott skipulag þarf líka að skapa ró í huganum.
Sjónrænu lausnirnar eru þróaðar í samstarfi við Gunnar Pál Leifsson, löggiltan sálfræðing hjá Sálfræðiþjónustu GP. Þannig tengjum við saman hagnýtt skipulag á heimilinu og faglega þekkingu á hegðun, venjum og ólíkum þörfum fólks.
Sálfræðiþjónusta GP