Reynsla af þjónustunni
Umsagnir viðskiptavina
Hvað breytist þegar heimilið fær skipulag sem auðvelt er að halda við?
Umsögn frá Maríu
„Þetta var ein besta fjárfesting sem ég hef gert fyrir heimilið mitt.“
Ég fékk Skipulagið til að taka heimilið mitt í gegn á meðan ég var í sumarfríi og ég get með sanni sagt að þjónustan hafi haft ótrúlega jákvæð áhrif á daglegt líf á heimilinu.
Allir skápar og hirslur voru skipulagðar, hlutir flokkaðir og komið fyrir þannig að allt ætti sinn ákveðna stað. Það sem átti ekki heima á ákveðnum stöðum var fært þangað sem það átti betur við og það sem ekki þurfti lengur að vera á heimilinu var tekið frá. Þegar ég kom heim var allt orðið svo miklu skýrara, einfaldara og þægilegra í umgengni.
Það sem hefur komið mér mest á óvart er hversu mikil áhrif gott skipulag hefur haft á hversdaginn. Það er miklu auðveldara að ganga frá, finna hluti og halda heimilinu snyrtilegu þegar allt á sinn stað. Þjónustan snýst því ekki bara um fallega og skipulagða skápa, heldur um að gera heimilið einfaldara í notkun og draga úr því álagi sem fylgir óreiðu og því að vita ekki hvar hlutir eiga að vera.
Eftirfylgnin hefur líka verið mjög dýrmæt. Skipulagið hefur hjálpað mér að halda skipulaginu við og þannig verður breytingin ekki bara tímabundin heldur hluti af daglegu lífi.
Ég get hiklaust mælt með Skipulaginu. Þetta var ein besta fjárfesting sem ég hef gert fyrir heimilið mitt og hefur gert daglega umgengni svo miklu einfaldari.
Umsögn frá Elísabetu
„Skipulagið kveikti neistann að því að halda áfram.“
„Skipulagið hjálpaði mér að losa um stíflu sem ég hafði myndað vegna kvíða yfir tiltektarverkefni sem hafði setið á hakanum. Eins og örugglega flestir þekkja getur svona verkefni vaxið í augum og valdið meiri og meiri kvíða.
Skipulagið kom og leysti verkefnið með glæsibrag, og það er magnað hvað það hafði mikil áhrif í kjölfarið. Stíflan og kvíðinn voru farin og allt í einu virtust önnur verkefni miklu einfaldari. Nú klára ég þau frekar strax og á auðveldara með að viðhalda því skipulagi sem komið var á.
Skipulagið kveikti neistann að því að halda áfram. Nú er ég sífellt að spá í hvernig ég geti gert fleiri rými betri, set fleiri verkefni af stað og finn jafnvel gleði í því að gera þau.
Takk fyrir að losa um uppsafnaðan kvíða vegna verkefnis sem mér fannst óyfirstíganlegt, en þið leystuð með bros á vör. Vegna ykkar fékk ég aftur löngun og jafnvel tilhlökkun til að bæta fleiri rými á heimilinu, starfsstöðina og margt fleira.“
Umsögn frá Elísabetu
„Það var allt sem ég hafði óskað mér og miklu meira en það.“
„Ég fékk Skipulagið í verkefni heima hjá mér sem sneri að skipulagi í skápum, skúffum og fleiru. Ég var á leið í frí og afhenti lyklana áður en ég fór. Þegar heim var komið beið mín falleg sjón. Það var allt sem ég hafði óskað mér og miklu meira en það. Allt átti nú sinn stað á heimilinu.
Það voru merkingar á ýmsum stöðum til að merkja hvað átti þann stað án þess þó að það væri áberandi. Verkefnin sem ég bað um voru gerð upp á 10 og svo var farið enn lengra og skipulagt fleiri hluti sem ég hafði ekki áttað mig á að þurftu skipulag.
Að koma heim úr fríi og taka við heimilinu svona er eitt það besta sem ég veit. Mæli 100% með Skipulaginu, þau vinna vinnuna hratt og vel og árangurinn er meiri en maður þorir að vona. Takk fyrir mig“
